1 Á 1 LEIÐSÖGN
Ef þetta hljómar eins og þú...
Þér líður ekki alveg eins vel og áður.
Orkan er minni. Líkaminn er stirðari eða eitthvað er farið að angra þig. Kannski sefur þú ekki eins vel, finnur fyrir meira álagi eða átt erfiðara með að ná þér niður.
Þú veist að eitthvað þarf að breytast.
Kannski hefur þú prófað ýmislegt. Byrjað að æfa, ætlað að hugsa betur um þig eða ákveðið að taka þig á - en einhvern veginn nær það ekki að festast.
Og kannski veistu ekki einu sinni nákvæmlega hvað þú þarft.
Það er allt í lagi. Við getum byrjað þar.
—— BYRJAÐU ÞAR SEM ÞÚ ERT
BYRJUNIN
Hvað vilt þú fá hjálp með?
01
Streita, kvíði og kulnun
Þú ert undir of miklu álagi, átt erfitt með að ná þér niður eða finnur að kerfið er einfaldlega orðið þreytt.
02
04
Verkir, stirðleiki og óþægindi
Bak, háls, axlir, mjaðmir eða líkaminn almennt er farinn að takmarka þig eða kalla á meiri athygli.
06
Betri svefn og endurheimt
Þú átt erfitt með að sofna, sefur illa eða vaknar án þess að finna fyrir raunverulegri hvíld.
Kyrrð og hugarró
Þú vilt geta hægt á, fundið meiri innri ró og skapað meira rými í huga og líkama.
Þú þarft ekki að velja aðeins eitt. Oft tengjast þessir þættir saman.
03
05
07
Meiri orka og úthald
Þú vilt vakna með meiri orku, eiga meira eftir þegar líður á daginn og byggja líkamann smám saman upp.
Öndun
Þú vilt bæta hvernig þú andar og nýta öndunina til að hafa áhrif á orku, ró, einbeitingu og líðan.
Dýpri persónuleg iðkun
Þú hefur þegar reynslu af jóga, hugleiðslu eða annarri iðkun og vilt skilja betur hvað þú ert að gera og hvert þú getur farið næst.
Fólk kemur til okkar af mjög ólíkum ástæðum.
Þú þarft ekki að vita hvað þú þarft að gera. Byrjaðu einfaldlega á því sem þú finnur fyrir - eða því sem þú vilt breyta.
Þú þarft ekki að hafa markmiðið á hreinu
RÉTT BYRJUN
Flestir koma með eitthvað ákveðið sem hefur verið að angra þá.
En það þýðir ekki að þeir viti hvað þeir þurfa.
Við byrjum á því að hlusta, skoða stöðuna og skilja hvað hefur verið í gangi - stundum í nokkrar vikur hjá þér, stundum í mörg ár.
Síðan finnum við byrjun.
Hún getur verið mjög einföld.
Það sem skiptir máli er ekki að gera mikið.
Það sem skiptir máli er að byrja á réttum stað.
————————————————————————
Persónuleg athygli. Við byrjum á því sem þú kemur með.
PERSÓNULEG LEIÐSÖGN
Hvað er öðruvísi við 1 á 1?
Í hóptíma fylgir þú kennslunni.
Í 1 á 1 fylgir kennslan þér.
Við sjáum hvernig þú hreyfir þig og andar. Við getum aðlagað iðkunina að líkamanum þínum, heilsu, orku, aldri, reynslu og því sem er að gerast í lífi þínu.
Og við getum breytt henni þegar þú breytist.
Þetta er einmitt það sem gerir 1 á 1 að allt öðru ferli en að mæta einfaldlega í tíma.
Hreyfing er eitt af verkfærunum.
-
Við notum þau verkfæri sem henta þér hverju sinni.
einföld og markviss hreyfing
öndunarþjálfun
djúp slökun og endurheimt
hugleiðsla og athygli
persónuleg iðkun fyrir heimavinnu
fræðsla og skilningur á því sem við erum að vinna með
Við þurfum ekki að nota allt. Við notum það sem þjónar þér.
-
Minna en þú heldur.
Við erum ekki að reyna að troða klukkutíma af jóga inn í líf sem hefur nú þegar of mikið að gera.
Fyrir suma henta stuttar æfingar yfir daginn - jafnvel tíu mínútur í einu. Fyrir aðra hentar tuttugu mínútna iðkun nokkrum sinnum í viku.
Við finnum takt sem líkaminn þinn ræður við og sem getur raunverulega orðið hluti af lífi þínu.
-
Já. Reyndar getur 1 á 1 breytt mjög miklu fyrir fólk sem hefur stundað jóga árum saman.
Það er mikill munur á því að fylgja hóptíma og því að hafa kennara sem horfir sérstaklega á þína iðkun.
Hvað ertu raunverulega að gera? Hvað mætti gera öðruvísi? Hvað þarf líkaminn þinn núna, sem hann þurfti kannski ekki fyrir tíu eða tuttugu árum?
Stundum er stærsta breytingin ekki að læra meira. Hún er að skilja betur.
ÖLL MANNESKJAN
Manneskjan er meira en líkaminn
Við getum byrjað á bakverki. Eða svefni. Eða öndun.
En manneskjan er ekki bara vandamálið sem hún kemur með.
Í jóga er manneskjunni lýst í gegnum fimm kosha - fimm lög eða víddir manneskjunnar..
Líkaminn
Hreyfing, styrkur, liðleiki og líkamleg líðan.
Öndun og orka
Hvernig þú andar, nýtir orkuna og bregst við álagi.
Hugurinn
Hugsanir, tilfinningar, streita og athygli.
Dýpri skilningur
Að sjá eigin mynstur skýrar og skilja hvað styður þig.
Innra jafnvægi
Meiri kyrrð, tenging og að vera betur heima í sjálfum sér.
1 á 1 krefst líka einhvers af þér
SAMSTARF
Þetta er ekki eitthvað sem við gerum við þig.
Við getum leiðbeint, kennt, aðlagað og hjálpað þér að sjá það sem þú sérð kannski ekki sjálf/ur.
En breytingin verður til í samstarfinu.
En þú þarft að vera tilbúin/n að taka þátt.
NÆSTU SKREF
Hvernig byrjum við?
Byrjaðu á samtali.
Í 30 mínútna frírri Zoom ráðgjöf segir þú okkur aðeins frá því hvar þú ert, hvað hefur verið að angra þig og hverju þú myndir helst vilja breyta.
Þú þarft ekki að vera með lausnina. Það er hluti af okkar starfi að hjálpa þér að finna næsta skref.
Ef við teljum að 1 á 1 geti hjálpað þér, útskýrum við hvernig við myndum byrja. Ef við teljum að eitthvað annað henti þér betur, segjum við þér það líka.
30 mínútur — Zoom — Engin skuldbinding
FRÍ RÁÐGJÖF
