Á STAÐNUM · KENNSLA Í REYKJAVÍK
Þú þarft rými til að læra — og kennara sem sér þig.
Art of Yoga er lítill kennslustaður. Hóparnir eru fámennir. Kennslan byggist upp skref fyrir skref svo þú fáir tíma til að skilja það sem þú ert að gera.
Skoða leiðirnar◇ Skipholt 35 · Reykjavík
FIMM LEIÐIR Á STAÐNUM
Byrjaðu þar sem hentar þér.
Ef þú vilt kynna þér nálgunina komdu á grunnvinnustofu.
01 · ÓKEYPIS KYNNING
Grunnvinnustofa
Ókeypis tveggja tíma kynning fyrir fólk sem vill skilja hreyfingu, öndun og athygli betur.
Skoða leiðina →
02 · SEX VIKNA LOTUR
Hóptímar
Sex vikna lotur í litlum hópi þar sem iðkunin byggist upp frá tíma til tíma.
Skoða leiðina →
03 · DÝPRI RANNSÓKN
Vinnustofur / Masterclass
Afmarkað viðfangsefni rannsakað af meiri nákvæmni og dýpt.
Skoða leiðina →
04 · HEILL DAGUR
Sādhanā-dagur
Heill dagur með iðkun, rannsókn, fræðslu, öndun og kyrrð.
Skoða leiðina →
05 · HJÁ YKKUR EÐA OKKUR
Fyrir vinnustaði og hópa
Praktísk kennsla í hreyfingu, öndun, streitu og orku — hjá okkur, hjá ykkur eða á netinu.
Skoða leiðina →
JÓGAKENNSLA Í LITLUM HÓPUM
Við sjáum hvern og einn.
Ef þú vilt að kennarinn sjái þig, leiðrétti og hjálpi þér að þróa iðkunina þína, þá er þetta staður fyrir þig.
Við kennum aðeins í litlum hópum, yfirleitt 9–12 manns. Þannig getum við fylgst með þér, aðlagað kennsluna og hjálpað þér að byggja upp dýpri skilning á eigin líkama, öndun og huga — og hvernig þú getur nýtt kennsluna betur í þínu eigin lífi.
- Hæg og nákvæm kennsla.
- Hreyfing, öndun, áreynsla og athygli vinna saman.
- Þú þarft ekki að kunna neitt til að byrja. Þú þarft bara að mæta, iðka og gefa þér tíma til að þróast.
KENNARARNIR
Gummi & Talya
Kennslan okkar er einstaklingsmiðuð innan Vinyāsa Krama hefðarinnar. Við aðlögum iðkunina að manneskjunni sem við kennum. Þér er velkomið að kynna þér okkur og kennsluna okkar.
BYRJAÐU EINFALT
Komdu á
Grunnvinnustofu.
Veist ekki hvað þú átt að gera? Byrjaðu hér.
Skoða vinnustofuna →