Lykillinn að Hryggnum

Hóptímar í Art of Yoga

Byrjaðu Jógaleiðina með okkur!

Komdu og prófaðu STIG 1 á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00, grunninn í okkar aðferð.

Við bjóðum nýjum iðkendum að upplifa nálgun okkar — þar sem öndun, hreyfing og athygli renna saman í eina samstillta iðkun. Kynntu þér hvernig markviss kennsla getur umbreytt því hvernig líkaminn andar, hreyfist og bregst við — og finndu muninn sjálf(ur).

Takmarkað pláss — smelltu á hnappinn til að skrá þig!

Stundatafla

Þriðjudagar (Tuesday)

  • kl. 17:00 – Lykillinn að hryggnum • Stig 1

  • kl. 18:20 – Lykillinn að hryggnum • Stig 2

Fimmtudagar (Thursday)

  • Kl. 17:00 – Lykillinn að hryggnum • Stig 1

  • Kl. 18:20 – Lykillinn að hryggnum • Stig 2

Laugardagar (Saturday)

  • Kl. 10:00 – Lykillinn að hryggnum • Stig 1-2

Verð

6 vikna tímabil kort – 19.500 kr.

Ótakmarkað aðgengi að hóptímum í sex vikur.

10 tíma Klippikort – 25.000 kr.

Sveigjanlegt kort fyrir þá sem hafa minni tíma – gildir í 3 mánuði.

Stakur tími – 3.300 kr.

Tímarnir eru kenndir í 6 vikna tímabili.

Um Tímana

Lykillinn að hryggnum á rætur sínar í klassísku Vinyasa Krama og byggir á stefnuhreyfingu hryggsins, öndun samkvæmt lögmálum Hatha jóga og þjálfun gjörhygli.

Við leggjum áherslu á að hver iðkandi finni sinn eigin taktfestu í öndun, hreyfingu og athygli.

Stig 1 – Byrjaðu jógaleiðina með okkur
Í Level 1 kynnast þátttakendur grundvallar lögmálum iðkunarinnar – öndun, hreyfingu og gjörhygli – og læra að tengja þau þrjú í eina lifandi heild. Þessi grunnþjálfun veitir dýpri skilning á líkamsvitund og kennir hvernig hægt er að byggja upp stöðugleika, orku og næmni í eigin iðkun.

Stig 2 – Dýpri nákvæmni og flæði
Fyrir þá sem hafa reynslu og vilja þróa meiri nákvæmni, flæði og samspil öndunar og hreyfingar. Í Level 2 er áhersla á að styrkja samstillingu og þróa flæði milli ásana og öndunar.

Stig 1-2 (laugard.) – Opinn tími fyrir alla
Aðlagaðar æfingar fyrir alla þátttakendur, þar sem áhersla er á samstillingu og djúpa líkamsvitund.


Skráning

Athugið: Öll kort eru án framlengingar. Frídagar og helgidagar eru reiknaðir inn í sex vikna tímabil (sem getur í reynd orðið 6–7 vikur ef margir frídagar falla á tímann).
Allir tímar eru kenndir á íslensku og ensku – við tökum vel á móti öllum.