FRÍTT 3 DAGA ZOOM-NÁMSKEIÐ
Lyklarnir að betra lífi.
Leiðin að heilsu, orku og skýrari huga.
Leitar þú að dýpri merkingu og tilgangi í lífinu? Finnur þú að líkaminn þurfi meira viðhald, orkan sé óstöðug og hugurinn oft óskýr eða ófókuseraður?
Kannski veistu ekki alveg hver fyrstu skrefin eru — en ert tilbúin/n að gera eitthvað í því.
Skrá mig frítt
Næstu dagsetningarBirtar fljótlega
FyrirkomulagÞrjú kvöld
StaðurLive á Zoom
VerðÓkeypis
HINIR ÞRÍR LYKLAR
Þrír inngangar að einu lífi.
Líkaminn, öndunin og hugurinn eru ekki aðskilin verkefni. Námskeiðið sýnir hvernig þau geta stutt hvert annað í daglegri iðkun.
01Lykillinn að hryggsúlunni
02Lykillinn að öndun
03Lykillinn að hugleiðslu
ÞRÍR LYKLAR · EIN IÐKUN
Þegar líkami, öndun og hugur styðja hvert annað.



RAKṢAṆA · VERNDUN
Heilsa þarf skýra stefnu.
Lykilatriðin þegar kemur að betra lífi eru að vernda líkamann, viðhalda orkunni og þróa skýrleika hugans.
Haṭha Jóga er heildrænt kerfi sem vinnur með þessa þrjá þætti — ef vel er staðið að þjálfuninni. Það skiptir máli hvernig iðkunin er byggð upp. Röng eða ómarkviss þjálfun getur rænt okkur orku og gert hugann enn dreifðari.
Við verndum það sem gefur okkur kraft og vilja til góðra verka, viðhöldum líkama, orku og huga og þróum gjörhygli — ekki aðeins að halda áfram á sjálfstýringu.
Heilsa snýst um orku, skýrleika, stefnu og getu til að taka fullan þátt í lífinu.
NÁMSKEIÐIÐ · ÞRJÚ KVÖLD
Hver lykill fær sitt eigið rými.
Lykillinn að hryggsúlunni.
Við lærum að hreyfa okkur frá miðju líkamans, þar sem hreyfingin á upptök í hryggnum sjálfum fremur en í útlimum eða ytra formi.
Þegar hreyfing og öndun vinna saman á þennan hátt verður líkaminn bæði stöðugri og frjálsari.
- Hvernig hreyfing á upptök í hryggnum
- Hvernig öndunin styður hreyfingu
- Grunnatriði úr jógískri líkamsfræði
- Hvernig líkamsvitund dýpkar í iðkun
Lykillinn að öndun.
Í Haṭha Jóga er öndunin grunnur alls. Ef hún er ekki virt og vernduð nær iðkunin aldrei sinni raunverulegu dýpt.
Þú færð skýran ramma til að skilja hvernig öndun tengist líkama, orku og huga.
- Samband öndunar og hryggjar
- Hlutverk þindarinnar í öndun
- Hlutverk CO₂ í lífeðlisfræði öndunar
- Muninn á studdri og ofkeyrðri öndun
- Prāṇa og hvernig Haṭha Jóga vinnur með öndun sem lífsorku
Lykillinn að hugleiðslu.
Í Haṭha Jóga er hugleiðsla ekki upphafspunktur heldur afleiðing. Hún verður möguleg þegar líkami og öndun styðja stöðugleika hugans.
Þú skilur betur hvernig hugleiðsla þróast þegar athyglin fær stoð, líkaminn verður stöðugur og öndunin kemst í jafnvægi.
- Hvernig Haṭha Jóga undirbýr hugleiðslu
- Þróun setstöðu
- Samband öndunar og hugans
- Einfalt kerfi fyrir daglega iðkun
VERTU HJARTANLEGA VELKOMIN/N
Frítt þriggja daga námskeið á Zoom.
Þrjú 90 mínútna kvöld. Næstu dagsetningar verða birtar fljótlega.
ÞETTA ER BYRJUNIN
Fyrsta skrefið í heildrænni þróun.
Lyklarnir að betra lífi eru inngangur að markvissri þróun líkama, andardráttar og huga.
Eftir námskeiðið verður boðið upp á framhald fyrir þau sem kjósa að byggja upp persónulega iðkun með skýrri framvindu.
Skoða undirstöðurnarKEMSTU EKKI NÚNA?
Fáðu tilkynningu um næsta fría námskeið.
Við sendum aðeins efni sem styður iðkun og upplýsingar um næsta námskeið.
