KLASSÍSKA BUTEYKO-AÐFERÐIN
Ertu þreytt/ur á að lifa með langvinn einkenni?
Astmi · ofnæmi · stíflað nef · mæði · hrotur · svefnvandamál · hár blóðþrýstingur · kvíði · höfuðverkur · þreyta · öndunarerfiðleikar
Kannski hefur þetta fylgt þér í mörg ár. Kannski hefur þú prófað allt, sumt virkað aðeins annað alls ekki. Og sumt hefur hjálpað um tíma áður en einkennin komu aftur.
„Þú hugsar með þér, þetta er bara eitthvað sem ég verð að lifa með.“
En hvað ef það er til lausn, sem þú bara veist ekki af henni - hvernig þú andar? Það skiptir máli hvernig líkaminn andar, ef líkaminn andar ekki vel virkar ekki neitt rétt.
Mæling · skilningur · kerfisbundin þjálfun
Þau voru búin að lifa með langvinnum einkennum og fengu sína lausn.
Hlustaðu á reynslu fólks sem hefur unnið markvisst með Klassísku Buteyko-aðferðinni.
Þórunn
Þórunn segir frá því hvernig hún notar Klassísku Buteyko-aðferðina til að vinna með einkenni hjartsláttartruflana og hvaða áhrif það hefur haft á líðan hennar.
Áslaug
Áslaug segir frá sinni reynslu af Klassísku Buteyko-aðferðinni.
Valgeir
Valgeir segir frá sinni reynslu af Klassísku Buteyko-aðferðinni.
Sólveig
Sólveig segir frá sinni reynslu af Klassísku Buteyko-aðferðinni.
KLASSÍSKA BUTEYKO-AÐFERÐIN
Hvað er Klassíska Buteyko-aðferðin?
Á fimmta áratugnum hóf hinn rússneski vísindamaður Konstantin P. Buteyko að rannsaka öndun og áhrif hennar á starfsemi líkamans.
Hann taldi að langvarandi oföndun gæti átt þátt í að viðhalda mörgum langvinnum einkennum. Úr þeirri kenningu þróaði hann kerfisbundna leið til að mæla öndun, minnka smám saman óþarfa öndunarrúmmál og fylgjast með breytingum yfir tíma.
Mæla
Athuga öndunarmynstrið og skrá upphafsstöðu.
Minnka
Draga varlega úr óþarfa öndunarrúmmáli.
Aðlaga
Venja kerfið smám saman við rólegri neföndun.
Fylgjast
Meta mælingar, einkenni og viðbrögð yfir tíma.
Markmiðið er ekki sérstök „öndunartækni“ sem þú gerir í tíu mínútur og gleymir svo. Markmiðið er að breyta því hvernig þú andar allan daginn.
Öndunin er skoðuð í hvíld, svefni, hreyfingu og daglegu lífi — ekki aðeins á meðan æfing stendur.
Það sem nemandinn lærir
- Fylgjast með og mæla eigin öndun
- Bera kennsl á merki um oföndun
- Minnka öndunina smám saman
- Nota neföndun eins mikið og mögulegt er
- Vinna með öndun í hvíld, svefni og hreyfingu
- Fylgjast með einkennum samhliða framförum
Konstantin Buteyko og yfir 200 einkenni
Í kenningu sinni tengdi Buteyko langvarandi oföndun við yfir 200 langvinn einkenni og heilsufarsvandamál.
Grundvallarspurning hans var einföld: Ef röskuð öndun getur átt þátt í að viðhalda einkennum, hvað gerist þá ef við lærum að leiðrétta öndunina?
Hvað merkir „Klassíska“ Buteyko?
„Klassíska“ vísar til upprunalegu aðferðarinnar og kennslulínunnar sem varðveitir heildarkerfið: mælingu, einstaklingsbundna aðlögun, daglega þjálfun og framvindu.
Markmiðið er því ekki að taka stakar öndunaræfingar úr samhengi heldur að vinna með aðferðina sem heild.
KENNARARNIR
Kennararnir á bak við Klassísku Buteyko-aðferðina.
Art of Yoga kennir Klassísku Buteyko-aðferðina í tengslum við Learn Buteyko Online. Kennslan stendur í lifandi kennslulínu sem leggur áherslu á heildarkerfið, nákvæma mælingu og einstaklingsbundna leiðsögn.
01
Vladimir Sukhonosov
Yfirkennari
Vladimir hóf þjálfun sína í Buteyko-aðferðinni árið 1979 eftir að hafa sjálfur glímt við ofnæmi og hjartavandamál. Hann starfaði síðar innan Buteyko-kerfisins í Sovétríkjunum og kenndi þúsundum einstaklinga.
Árið 1985 hlaut hann diplómu frá prófessor Buteyko og síðar sérstaka Audit Diploma. Vladimir hefur meira en fjögurra áratuga reynslu af aðferðinni.
MYNDBAND · VLADIMIR SUKHONOSOV
02
Christopher Drake
Yfirkennari · Learn Buteyko Online
Christopher Drake var fyrsti vestræni sérfræðingurinn til að hljóta Red Diploma viðurkenningu frá prófessor Buteyko.
Árið 1991 var hann meðstofnandi einnar fyrstu viðurkenndu Buteyko-klíníkurinnar á Vesturlöndum í Sydney. Hann hefur síðan kennt þúsundum einstaklinga víða um heim og stofnaði Learn Buteyko Online árið 2013.
MYNDBAND · CHRISTOPHER DRAKE
03
Marcelle Adamson
Buteyko-kennari
Marcelle kom sjálf að Buteyko-aðferðinni vegna alvarlegra heilsufarsvandamála sem höfðu fylgt henni frá barnæsku.
Eftir eigin reynslu hóf hún þjálfun sem kennari og sérfræðingur. Í dag kennir hún námskeið, heldur fyrirlestra og vinnur einstaklingslega með nemendum innan Learn Buteyko.
04
Guðmundur Pálmarsson
Buteyko leiðbeinandi
Gummi kennir Klassísku Buteyko-aðferðina í tengslum við Learn Buteyko Online. Hann kom að aðferðinni út af of háum blóðþrýstingi og náði að leiðrétta hann á mjög skömmum tíma.
ÓKEYPIS · FIMM DAGA GRUNNNÁMSKEIÐ
Byrjaðu á aðferðinni — ókeypis.
Við höldum ókeypis fimm daga grunnnámskeið í Klassísku Buteyko-aðferðinni á um fjögurra til átta vikna fresti.
Dagsetningar eru tilkynntar með tölvupósti þegar næsta námskeið opnar.
Skrá migÓKEYPIS · FIMM SKREFA ÞJÁLFUN
Stórbættu heilsu þína!
Fimm tölvupóstar sem kynna þig fyrir meginhugmyndir Klassísku Buteyko-aðferðarinnar og hjálpa þér að byrja að skilja hvernig öndun, lífeðlisfræði og daglegt líf tengjast.
Með skráningu ferðu einnig á póstlista Art of Yoga og getur fengið fræðslu og upplýsingar um væntanleg námskeið. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
