01 · KLASSÍSKA BUTEYKO-AÐFERÐIN
Andnæmispásan er grunnmæling í klassísku Buteyko-aðferðinni.
Andnæmispásan er viðmið til að meta heilsu líkamans og hvernig líkaminn andar hverju sinni. Hún hjálpar okkur að meta hversu mikið loft líkaminn andar í hvíld og hvernig hann bregst við uppsöfnun CO₂. Í Klassísku Buteyko-aðferðinni er meginmarkmiðið að halda CO₂ því CO₂ er aðalatriðið í súrefnisupptöku líkamans — þegar CO₂ hækkar í líkama, erum við heilbrigðari.
HVAÐ ER HÚN?
Einföld leið til að mæla heilsu líkamans.
Andnæmispásan er einföld mælin en tekur tíma að skynja vel. Það er mikiævægt að endurtaka hana reglulega við sömu aðstæður til að fá sem réttustu mælingu. Hún gefur þér viðmið sem hjálpar þér að fylgjast með breytingum í öndunarmynstrinu yfir tíma.
Mælingin á að vera þægileg og áreynslulaus. Um leið og þú finnur fyrsta viðbragð líkamans stopparðu tímann og andar aftur eðlilega, það á ekki að vera nein breyting í öndun þegar þú losar nefið.
Mikilvægt: Ekki bíða þar til þú þarft að berjast við öndunarþörfina. Þá ertu farin/n að mæla viljastyrk frekar en andnæmi.
fyrir nefið
Ýttu á Byrja eftir eðlilega útöndun. Ýttu aftur um leið og fyrsta viðbragð líkamans kemur.
SVONA MÆLIR ÞÚ
Fimm einföld skref.
Sestu niður og leyfðu öndun að setjast.
Vertu kyrr í nokkrar mínútur. Ekki mæla beint eftir áreynslu, stórri máltíð eða þegar þú ert að reyna að stjórna önduninni.
Andaðu eðlilega inn og eðlilega út.
Engin djúp innöndun og engin ýkt útöndun. Haltu öllu eins náttúrulegu og hægt er.
Klíptu fyrir nefið og smelltu á skeiðklukkuna að ofan, byrjaðu mælingu.
Gerðu það strax eftir venjulega útöndun. Haltu munninum lokaðann og líkamann slakann.
Losaðu nefið við fyrsta líkamlega viðbragðið, stöðvaðu skeiðklukkuna.
Ekki teygja mælinguna. Markmiðið er að finna fyrstu eðlilegu þörfina fyrir andardrátt, ekki hámarksöndunarhald.
Skynjaðu hvernig líkaminn andar eftir losun.
Ef næsta innöndun verður stór eða þú þarft að „ná andanum“ hefurðu líklega haldið of lengi. Mældu reglulega og sjáðu hvernig andnæmi þitt er.
HVAÐ SEGIR TALAN?
Hugsaðu um hana sem viðmið fyrir þína líkamlega heilsu, þetta er líklega ein besta mælieining fyrir heilsu þína.
Ein stök mæling segir lítið ein og sér. Gildið verður gagnlegra þegar þú mælir við sambærilegar aðstæður og fylgist með þróuninni yfir tíma. Þegar pásan lengist þá er það merki um að heilsu þín sé að batna.
Mældu eins.
Svipaður tími dags, mældu þig í hvíld og gerðu sömu framkvæmd til að gera samanburðinn marktækari.
Leitaðu að mynstri.
Dagleg sveifla er eðlileg. Það sem skiptir meira máli er þróunin yfir daga og vikur.
Þægindi fyrst.
Andnæmispása á ekki að verða keppni í að halda niðri í sér andanum. Þú átt að skynja fyrsta viðbragð líkamans, ekkert meir.
