Gummi Pálmarsson
Forvitni sem verður að kennslu.
Gummi hefur stundað yoga í um aldarfjórðung og kennt í meira en tvo áratugi. Hann vinnur sérstaklega með samband hreyfingar, öndunar, áreynslu og athygli.
Hafa samband
Hvernig ég kenni
Ég vil vita hvað breytist í raun.
Langt nám og hefð skipta máli, en þau eru ekki endapunkturinn. Kennslan þarf að standast reynslu manneskjunnar sem er fyrir framan mig.
Undanfarin ár hefur skilningur Gumma á öndun þróast mikið í gegnum klassísku Buteyko-aðferðina. Sú vinna hefur líka breytt því hvernig hann skoðar áreynslu, endurheimt og öndun innan yoga.
Í kennslunni
Að horfa vel áður en næsta skref er valið.
Rætur og þróun
Hefðin er grunnur — ekki girðing.
Kennslan á rætur í starfi T. Krishnamacharya og T.K.V. Desikachar og áralöngu námi í einstaklingsmiðaðri nálgun.
En góð kennsla þarf líka að geta spurt nýrra spurninga og tekið mið af því sem reynsla og lífeðlisfræði sýna.
Vinna með Gumma
Segðu mér hvar þú ert.
Stutt samtal dugar til að finna hvort hópur, eitt á einn eða Buteyko sé rétt byrjun.
Taktu fyrsta skrefið með stuttu samtali. Við hjálpum þér að finna hvaða leið passar best.
Bóka samtal