Sterkir, stífir og stressaðir
Fyrir alla karla sem vilja, Meiri hreyfanleika, Aukinn liðleiki og Minni streitu.
Fjórir miðvikudagar · 4.–25. nóv. 2026
Kl. 18:10 - 19:10
Fjögur skipti · Hámark 12 þátttakendur
Verð til staðfestingar
Skipholt 35, 2. hæð
Reykjavík
Það er hægt að öðlast meira frelsi í hreyfingum.
Þegar líkaminn er stífur og hreyfingar takmarkaðar getur verið erfitt að vita hvar á að byrja. En það skiptir ekki aðeins máli hvað þú gerir — heldur líka hvernig þú gerir það.
Á þessu fjögurra vikna námskeiði leiðir Gestur þig í gegnum markvissa líkamsiðkun, öndun og hreyfingar sem byggjast upp skref fyrir skref. Þú færð skýra leiðsögn og lærir að nálgast æfingarnar þannig að liðleiki og hreyfanleiki geti aukist smám saman.
Þú þarft hvorki að vera sterkur né liðugur til að byrja. Þú byrjar þar sem þú ert.
Námskeiðið er ætlað körlum sem vilja draga úr stífleika, hreyfa sig betur og finna meiri léttleika í líkamanum.
- Fyrir þig sem ert stífur og finnur að hreyfanleikinn hefur minnkað.
- Fyrir þig sem vilt bæta liðleika, sveigjanleika og hreyfigetu.
- Fyrir þig sem vilt draga úr streitu og álagi með líkamlegri iðkun.
- Fyrir þig sem vilt skilja hvernig þú getur byggt upp hreyfanleika með skýrri og markvissri æfingu.
Leiðin frá Hot Yoga til einstaklingsmiðaðrar iðkunar
Ég hafði lengi verið áhugasamur um hugleiðslu og jóga en kynntist fyrst asana-iðkun í gegnum Hot Yoga árið 2010. Ég stundaði Hot Yoga hóptíma næstu árin og árið 2016 fór ég í kennaranám hjá Jimmy Barkan. Í framhaldi af því fór ég að kenna í ýmsum líkamsræktarstöðvum um Reykjavík.
Árið 2017 kynntist ég Guðmundi og hóf nám hjá honum í Viniyoga í gegnum einkatíma. Þar fékk ég ítarlegri nálgun á líkamsbeitingu og öndun og mín jóga-iðkun varð einstaklingsmiðaðri og dýpri.
Árið 2024 fór ég í kennaranám í Viniyoga hjá Guðmundi og Talyu.
Meiri samfelldni í iðkuninni.
Námskeiðið byggir ekki aðeins á fjórum kennslustundum. Það gefur einnig aðgengi að heimaiðkun og auka tækifæri til að halda áfram að byggja upp hreyfanleika og liðleika.
Aðgangur að IÐKUN — heimaæfingasvæði Art of Yoga
Aðgangur að völdum æfingum og efni sem styður við iðkunina heima, svo þú getir dýpkað skilninginn og haldið áfram milli tímanna.
Fjórir laugardagstímar kl. 10:00 innifaldir
Innifalið í námskeiðinu er einnig aðgangur að fjórum laugardagstímum hjá Art of Yoga án aukakostnaðar, til að styðja við framhald og samfelldni í iðkuninni.
Meira frelsi í hreyfingum.
Fjögur skipti í litlum hópi. Fyrir karla sem vilja minni stífleika, meiri liðleika og minni streitu.Auk þess fylgir aðgangur að IÐKUN og fjórir laugardagstímar kl. 10:00 án aukakostnaðar.
SKRÁ ÞIG Á NÁMSKEIÐ