Slakað og sleppt með Siggu Eyþórs
Rými til að hægja á, sleppa spennu og finna aftur ró.
Fjórir miðvikudagar · 11. nóv. – 2. des. 2026
Kl. 17:00–18:00
Fjögur skipti · Hámark 12 þátttakendur
Verð til staðfestingar
Skipholt 35, 2. hæð
Reykjavík
Þú þarft ekki alltaf að halda öllu gangandi.
Þegar dagarnir eru fullir og álagið hefur safnast upp getur verið erfitt að finna leiðina niður í ró. Líkami og hugur þurfa líka svigrúm til að hvílast.
Á þessu fjögurra vikna námskeiði leiðir Sigga þig í gegnum milda iðkun, öndun og slökun. Áherslan er á að losa um spennu, hlusta á eigin líkama og læra einfaldar leiðir til að skapa meiri ró í hversdeginum.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Hér þarftu hvorki að standa þig né sanna neitt — aðeins að mæta og gefa þér tíma.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað konum sem finna fyrir miklu álagi og vilja gefa sér tíma til að jafna sig og ná aftur ró.
- Fyrir þig sem ert undir stöðugu álagi og átt erfitt með að slaka á.
- Fyrir þig sem finnur fyrir streitu, kvíða eða einkennum langvarandi þreytu og örmögnunar.
- Fyrir þig sem upplifir að kröfurnar í daglegu lífi séu orðnar of miklar.
- Fyrir þig sem vilt stíga út úr stöðugri keyrslu og læra leiðir til að hægja á, sleppa spennu og hvílast.
Sigga er með víðtækan bakgrunn úr heilbrigðis og listageiranum. Hún er menntuð sem sjúkraliði og einkaþjálfari og með háskólagráðu í tónsmíðum. Síðustu ár hefur hún mestmegnis starfað sem tónlistarkona og kennari. Í sumar lauk hún 240 klst yogakennara námi hjá Art of Yoga.
Ég byrjaði hjá Talyu í einkatímum 2021. Ég var með mikla stoðkerfisverki og þrátt fyrir að vera í góðu formi líkamlega og æfa mikið þá var ég alltaf þreytt og orkulaus. Talya kenndi mér að draga úr streitu og spara orku með hreyfingu og öndun
Með iðkuninni komst ég í betra samband við sjálfa mig. Ég upplifði ró og frið innra með mér og um leið fann ég orkuna og úthaldið aukast.
Meiri stuðningur á milli tímanna.
Námskeiðið getur gefið meira en fjögur skipti í salnum. Þátttakendur fá einnig aðgang að efni sem styður við rólega og nærandi iðkun heima.
Aðgangur að IÐKUN — heimaæfingasvæði Art of Yoga
Aðgangur að völdum æfingum og leiðsögn sem styður við iðkunina milli tímanna og hjálpar þér að halda áfram á þínum eigin hraða.
Fjórir laugardagstímar kl. 10:00 — valfrjálst
Þátttakendum stendur einnig til boða að mæta í fjóra laugardagstíma hjá Art of Yoga án aukakostnaðar, ef og þegar þær telja það henta sér.
Gefðu þér rými til að slaka á.
Fjögur skipti í litlum hópi. Fyrir þig sem vilt hvíld, mýkt og meiri ró í daglegu lífi.Auk þess fylgir aðgangur að IÐKUN og valfrjálsir laugardagstímar kl. 10:00 án aukakostnaðar.
