ART OF YOGA   ·   REYKJAVÍK

Sterkir, stífir og stressaðir

Fyrir alla karla sem vilja, Meiri hreyfanleika, Aukinn liðleiki og Minni streitu.

MEÐ GESTI · FJÖGUR SKIPTI
Nýtt námskeið hefst
4. nóvember

Fjórir miðvikudagar · 4.–25. nóv. 2026
Kl. 18:10 - 19:10

SKRÁÐU ÞIG Á NÁMSKEIÐIÐ
Verð
17.900 kr.

Fjögur skipti · Hámark 12 þátttakendur
Verð til staðfestingar

Staðsetning
Art of Yoga

Skipholt 35, 2. hæð
Reykjavík

Þegar líkaminn er orðinn stífur

Þegar líkaminn er stífur og hreyfigeta takmörkuð getur verið erfitt að vita hvar á að byrja. En það skiptir ekki aðeins máli hvað þú gerir — heldur líka hvernig þú gerir það.

Á þessu fjögurra vikna námskeiði leiðir Gestur þig í gegnum markvissa og stigvaxandi iðkun þar sem hver æfing byggir á þeirri fyrri. Þú lærir að beita líkamanum á réttan hátt, hreyfa þig út frá miðju líkamans og nota andardrátt til að draga úr spennu og streitu.

Með skýrri leiðsögn og markvissri uppbyggingu öðlast þú betri skilning á eigin líkama og hvernig hægt er að auka liðleika, hreyfanleika og styrk smám saman.

Þú þarft hvorki að vera sterkur né liðugur til að byrja. Þú byrjar þar sem þú ert.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er ætlað körlum sem vilja draga úr stífleika, hreyfa sig betur og finna meiri léttleika í líkamanum.

  • Fyrir þig sem ert stífur og finnur að hreyfanleikinn hefur minnkað.
  • Fyrir þig sem vilt bæta liðleika, sveigjanleika og hreyfigetu.
  • Fyrir þig sem vilt draga úr streitu og álagi með líkamlegri iðkun.
  • Fyrir þig sem vilt skilja hvernig þú getur byggt upp hreyfanleika með skýrri og markvissri æfingu.

Með Gesti — reynsla og bakgrunnur

Ég hafði lengi verið áhugasamur um hugleiðslu og jóga en kynntist fyrst asana-iðkun, eða líkamlegum þætti jóga, í gegnum Hot Yoga árið 2010. Ég stundaði Hot Yoga hóptíma næstu árin og árið 2016 fór ég í kennaranám hjá Jimmy Barkan. Í framhaldi af því fór ég að kenna í ýmsum líkamsræktarstöðvum um Reykjavík.

Árið 2017 kynntist ég Guðmundi og hóf nám hjá honum í Viniyoga í gegnum einkatíma. Þar fékk ég ítarlega leiðsögn í líkamsbeitingu og öndun og jóga-iðkun mín varð einstaklingsmiðaðri og dýpri.

Árið 2024 fór ég í kennaranám í Vinyasa Krama hjá Guðmundi og Talyu.

Andlitsmynd af Gesti
Hvað er einnig innifalið?

Meiri samfelldni í iðkuninni.

Námskeiðið byggir ekki aðeins á fjórum kennslustundum. Það gefur einnig aðgengi að heimaiðkun og auka tækifæri til að halda áfram að byggja upp hreyfanleika og liðleika.

Aðgangur að IÐKUN — heimaæfingasvæði Art of Yoga

Aðgangur að völdum æfingum og efni sem styður við iðkunina heima, svo þú getir dýpkað skilninginn og haldið áfram milli tímanna.

Fjórir laugardagstímar kl. 10:00 — valfrjálst

Innifalið í námskeiðinu er einnig aðgangur að fjórum laugardagstímum hjá Art of Yoga án aukakostnaðar, til að styðja við framhald og samfelldni í iðkuninni.

Fjögur skipti í litlum hópi. Fyrir karla sem vilja minni stífleika, meiri liðleika og minni streitu.Auk þess fylgir aðgangur að IÐKUN og fjórir laugardagstímar kl. 10:00 án aukakostnaðar.