EINN DAGUR · MEIRI DÝPT
SĀDHANĀ
DAGUR
Dagur í lífi jóga.
Stundum þurfum við einfaldlega að stíga út úr hversdagsleikanum — frá vinnunni, símanum, fjölskyldunni og öllu því sem kallar á athygli okkar.
Sādhanā þýðir einfaldlega iðkun — dagur til að stíga til hliðar og veita jógaiðkuninni óskipta athygli í nærveru annarra.
Sādhanā dagur er tækifæri til að taka frá einn dag og helga hann iðkuninni.
“A deeper relationship with your practice.”
Iðkun
Āsana, Nyāsa,
Prāṇāyāma, Dhyāna
Fræðsla
Innsýn í hefðina
og nútímalíf
Dýpri skilningur
Āsana lab með leiðsögn
og persónulegri nálgun
Samvera
Léttur hádegisverður
og góðar umræður
KALLIÐ EFTIR MEIRA
Kannski langar
þig einfaldlega
í meira.
Kannski stundar þú nú þegar jóga og/eða hugleiðslu en finnur að þig langar í meiri tíma til að iðka, meiri dýpt, samtal og samveru með fólki sem hefur áhuga á sömu hlutum.
Sādhanā dagurinn er tækifæri til að draga þig í hlé í einn dag. Ekki til að flýja lífið, heldur til að stíga tímabundið út úr venjulegum takti þess og beina athyglinni að einhverju öðru.
Gefðu þér þennan tíma — rými til að anda, rými til að hlusta og rými til að iðka.
Er Sādhanā dagurinn fyrir mig?
Fyrir þig sem vilt fara dýpra inn í iðkunina.
Fyrir þig sem vilt dýpri fræðslu og skilning.
Fyrir þig sem vilt stíga út úr daglegum takti í einn dag og gefa iðkuninni fullt rými.
Dagskrá
Smelltu á hvern lið til að lesa meira
10:00 – 11:00 Heildræn iðkun Heildræn iðkun Hatha Yoga +
Við byrjum morguninn á heildrænni iðkun Hatha Yoga — leið til að snúa athyglinni inn á við og tengjast hinni sönnu uppsprettu innra með okkur.
Við vinnum með líkamsstöður (Āsana), innri staðsetningu athyglinnar (Nyāsa) og öndunaræfingar (Prāṇāyāma) í einni samfelldri iðkun þar sem líkami, öndun og hugur eru undirbúin skref fyrir skref.
Iðkunin leiðir okkur að lokum inn í sitjandi hugleiðslu (Dhyāna).
11:00 – 12:00 Þema dagsins Hatha og Raja — tvær hliðar sömu iðkunar +
Við skoðum samband Hatha og Raja Yoga með einfaldri mynd: líkt og þegar tveir einstaklingar ganga í hjónaband og mynda eina heild, þá styðja Hatha og Raja hvort annað og vinna saman.
Hatha snýr meira að orkunni og undirbúningnum — að því að byggja upp og beina lífsorkunni (Prāṇa) og vekja innri eldinn (Agni). Án þessarar orku er erfitt að fara inn á dýpri svið athyglinnar.
Raja snýr meira að huganum og því sem mótar okkur að innan. Þar skoðum við meðal annars hugann og hugarsviðið (Citta), ávanabundin hugsana- og hegðunarmynstur (Saṃskāra) og dýpri tilhneigingar og minni sem hafa áhrif á hvernig við upplifum og bregðumst við (Vāsanā).
Markmiðið er ekki að læra flókin hugtök, heldur að sjá einfaldlega hvernig orkan sem við byggjum upp og mynstrin sem við berum með okkur hafa áhrif hvort á annað — og hvernig iðkunin hjálpar okkur að vinna með bæði.
12:00 – 14:00 Āsana Lab Framteygjur, Vinyāsa Krama og dýpri skilningur +
Við skoðum hvernig framteygjur eru iðkaðar í klassískri jógaiðkun, með sérstakri áherslu á Paścimottānāsana og leiðir sem undirbúa líkamann fyrir dýpri vinnu.
Við förum í lögmál framteygjunnar og skoðum hvað jógarnir áttu við með „vesturáttinni“ í Paścimottānāsana. Við skoðum einnig hvernig mjaðmagrind, spjaldbein og mjóbak vinna saman og hvernig mismunandi vinklar breyta því hvernig staðan upplifist og hvar hreyfingin á sér stað.
Tíminn verður bæði iðkun og rannsókn. Við vinnum saman í litlum hópum, fylgjumst með hreyfingu hvers annars og lærum að greina betur hvað líkaminn er í raun að gera í framteygjum.
Markmiðið er ekki einfaldlega að komast lengra inn í stöðuna, heldur að öðlast dýpri skilning á því hvernig við förum þangað — og hvernig góð aðlögun getur gert iðkunina bæði skilvirkari og skýrari.
14:00 – 15:00 Hádegisverður saman Súpa, brauð og góð samvera +
Við endum daginn saman yfir léttum hádegisverði — súpu, brauði og öðru meðlæti.
Te, kaffi og létt snarl verður einnig í boði fyrir þátttakendur yfir daginn.
Engin frekari dagskrá á þessum tíma — bara matur, samtal og rými til að njóta samverunnar eftir iðkun dagsins.
NÆSTI SĀDHANĀ DAGUR
Fimm klukkustundir.
Takmarkaður hópur.
Fimm klukkustundir með iðkun, fræðslu, dýpri skilningi og samveru í litlum hópi.
BÓKA SÆTIÐ ÞITT
Veldu það sem á við um þig.
Sætið þitt er tryggt þegar greiðsla hefur borist.
Fjármál eiga ekki að standa í vegi fyrir iðkun. Ef þú þarft okkar aðstoð, vinsamlega hafðu samband.
