STAFRÆNT NÁMSKEIÐ

Lyklarnir að betra lífi

Hreyfing · Öndun · Hugleiðsla

Skref fyrir skref. Á þínum hraða. Hvar sem er.

Myndbönd Leiddar æfingar og fræði
Handbók 57 blaðsíður
Hljóðefni Öndun
Ævilangur aðgangur Æfðu þegar þér hentar
KAUPA NÁMSKEIÐIÐ →
ÞEKKIRÐU ÞETTA?

Ertu á miðjum aldri — eða aðeins farin(n) að eldast?

Þú hefur nóg á þinni könnu. Líkaminn, orkan þín og hugurinn eru farin að senda þér skýr skilaboð um að eitthvað þurfi að breytast.

Líkaminn

Þú ert stirðari og ekki eins hreyfanlegu/ur en áður. Verkir, óþægindi og bólgur eru farin að gera vart við sig sem þú þekktir ekki áður fyrr.

Orkan

Þú ert þreyttari og hefur ekki sama úthald, svefninn er rofinn þú vaknar einu sinni eða oftar yfir nóttina. Kaffibollarnir verða fleiri, en orkan endist samt ekki. Þú veist að þú þarft að gera eitthvað en veist ekki hvað.

Hugurinn

Ábyrgðin og álagið eru mun meira en það var. Hugurinn er stöðugt á flakki og oft þokukenndur, kvíð og streita eiga greiðari aðgang, og þú átt erfitt með að einbeita þér að því sem þú þarft að gera.

Það er ekki of seint að snúa þessu við, en þú verður að vera tilbúin/n að gera eitthvað í þessu.

Þú getur byrjað í dag á þremur lyklum að betra lífi, og byggt upp betri líðan í líkama, orku og huga, skref fyrir skref.

Með reglulegri iðkun á þremur lyklum muntu fá:

Meiri ró

Finndu aftur innri ró

Láttu spennu dagsins líða úr líkamanum og lærðu að kyrra hugann. Finndu meiri ró og betra jafnvægi þegar álagið eykst. Stuttar æfingar gefa þér leið til að staldra við, líka á annasömum degi.

Meiri orka

Meiri kraftur í daglegt líf

Þú munt finna meiri kraft og léttleika í daglegu lífi. Einfaldar æfingar hjálpa þér að byggja upp orku og úthald án þess að ganga á líkamann. Þetta snýst um einfaldleika.

Minni verkir

Betri blóðrás í líkamanum

Með þeim einföldu verkfærum sem við kennum þér á námskeiðinu muntu auka og bæta blóðflæði, sem hjálpar þér að draga úr verkjum og bólgum. Markviss iðkun hjálpar þér að byggja upp hreyfanleika á þínum hraða.

REYNSLA ÞÁTTTAKENDA

Hvernig hefur iðkunin nýst öðrum?

“

Ég keypti námskeiðið Lykillinn að betra lífi hjá Art of Yoga og er mjög ánægð með hvernig Gummi og Talya kenna. Þau gefa góðar og skýrar leiðbeiningar sem nýtast vel í heimaiðkun.

Ég mæli sérstaklega með önduninni, því hún getur verið góð undirstaða fyrir betri líðan. Ég fann sjálf fljótt mun á því hvernig mér leið og upplifði jákvæð áhrif á taugakerfið.

Námskeiðið er vel uppbyggt og leiðbeiningarnar hjálpa manni að fá sem mest út úr iðkuninni.

Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði!

Þórunn

“

Ég hef nú stundað æfingarnar í Lyklunum að betra lífi í um tvær vikur og er virkilega ánægð með árangurinn.

Ég hef lengi fundið fyrir lélegri blóðrás í fótunum, þreytu og verkjum í baki. Það hefur komið mér skemmtilega á óvart hversu fljótt ég hef fundið mun. Blóðrásin í fótunum virðist hafa batnað, bakverkirnir hafa minnkað og mér líður betur.

Öndunaræfingarnar hafa líka haft mjög góð áhrif á mig. Eftir þær finn ég fyrir mikilli ró, bæði í líkama og huga.

Það er ótrúlega ánægjulegt að finna svona jákvæðar breytingar á aðeins tveimur vikum.

Kristín Haraldsdóttir

UM NÁMSKEIÐIÐ

Þrír lyklar. Ein heildstæð iðkun.

Lyklarnir að betra lífi er stafrænt jóganámskeið sem þú stundar heima, þegar þér hentar á þínum hraða. Þú byrjar á hreyfingu, heldur áfram með öndun og vinnur síðan með athygli og hugleiðslu. Hver hluti byggir á þeim fyrri. Einfalt og aðgengilegt

3Kennsluhlutar
3Leiddar aðaliðkanir
57Blaðsíður í handbók
∞Aðgangur til frambúðar

Fyrir hvern er námskeiðið?

Fyrir þann sem er á miðjum aldri eða eldri og er orðin/n þreytt/ur á að finna fyrir verkjum í líkamanum, einbeitingarleysi, lélegri starfsorku yfir daginn og tíðum svefnvandamálum. Hann er tilbúinn að vinna með einfalda og aðgengilega iðkun í jóga, öndun og hugleiðslu til að öðlast aftur það jafnvægi sem hann hafði áður.

Hvernig fer námskeiðið fram?

  • Horfðu á upptöku úr lifandi kennslu.
  • Fylgdu leiddri iðkun á þínum hraða.
  • Skoðaðu vinnustofur og handbókina.
  • Endurtaktu æfingarnar eins oft og þú vilt.
01 LÍKAMI→ 02 ÖNDUN→ 03 ATHYGLI

UM NÁMSKEIÐIÐ

Þrír lyklar. Ein heildstæð iðkun.

Lyklarnir að betra lífi er stafrænt jóganámskeið sem þú stundar heima, þegar þér hentar og á þínum hraða. Þú byrjar á hreyfingu, heldur áfram með öndun og vinnur síðan með athygli og hugleiðslu. Hver hluti byggir á þeim fyrri. Einfalt og aðgengilegt.

Sitjandi jógaiðkun – fyrsti hluti Paścimottānāsana
3 Lifandi kennsluhlutar
3 Leiddar æfingarútínur
57 Blaðsíðna handbók
✦ Vinnustofur
+ Aukaefni
∞ Ævilangur aðgangur

Er þetta námskeið fyrir þig?

Ef þú ert á miðjum aldri eða eldri og er orðin/n langþreytt/ur á að finna fyrir verkjum í líkaman, einbeitingarleysi og heilaþoku, lélegri starfsorku yfir daginn og tíðum svefnvandamálum.

Ef þú er tilbúin/n að vinna með einfalda og aðgengilega jógaiðkun, öndun og hugleiðslu til að öðlast aftur það jafnvægi sem þú hafði áður.

Hvernig fer námskeiðið fram?

  • Horfðu á upptöku úr lifandi kennslu.
  • Fylgdu leiddri iðkun á þínum hraða.
  • Skoðaðu vinnustofur og handbókina.
  • Endurtaktu æfingarnar eins oft og þú vilt.
01 LÍKAMI → 02 ÖNDUN → 03 HUGLEIÐSLA

INNIHALD NÁMSKEIÐSINS

Skoðaðu námskeiðið.

Þetta er uppbygging námskeiðsins eins og hún birtist nemendum. Opnaðu kennsluhlutana og skoðaðu hvað fylgir hverjum þeirra.

UPPHAF

BYRJAÐU HÉR

Gefðu hverju skrefi tíma.

Velkomin
Kynning á námskeiðinu.
Hvernig námskeiðið virkar
Leiðsögn um uppbyggingu námskeiðsins.
Hvernig á að nota efnið
Hagnýtar upplýsingar um notkun efnisins.
Hvað þú þarft áður en þú byrjar
Undirbúningur fyrir heimaiðkun.

01 · LÍKAMINN

KENNSLA 1 — Hryggsúlan

Hreyfing, stefna og skynjun.

Upptaka úr lifandi kennslu

Sýnishorn úr raunverulegri kennslustund. Full kennsla fylgir námskeiðinu.

Iðkun 1 — Hryggsúlan
Āsana vinnustofur

Heil vinnustofa — Fótleggir til lofts

Hér geturðu skoðað heila āsana-vinnustofu úr námskeiðinu. Fylgstu með hvernig hreyfingin er útskýrð skref fyrir skref.

Heil vinnustofa úr kennsluefni námskeiðsins.

Kafli 1 — Hryggsúlan
Forsíða Kafla 1 — Hryggsúlan, úr handbókinni Lyklarnir að betra lífi

Kafli 1 — Hryggsúlan

Fyrsti kafli handbókarinnar fjallar um hryggsúluna, hreyfingu, öndun og líkamsvitund. Skoðaðu forsíðuna úr raunverulegu námsefni.

02 · ÖNDUNIN

KENNSLA 2 — Öndun

Fyrri grunnur þróast með öndun.

Upptaka úr lifandi kennslu
Kennsla um öndunina. Full upptaka fylgir námskeiðinu.
Iðkun 2 — Öndun
Leidd iðkun sem byggir á fyrri hluta námskeiðsins.
Āsana vinnustofur
Nánari leiðsögn um hreyfingar og æfingar.
Kafli 2 — Öndun
Viðeigandi kafli úr handbókinni.

03 · ATHYGLIN

KENNSLA 3 — Athygli og hugleiðsla

Líkami og öndun undirbúa kyrrð.

Upptaka úr lifandi kennslu
Kennsla um athygli og hugleiðslu.
Iðkun 3 — Hugleiðsla
Leidd iðkun í þriðja hluta námskeiðsins.
Āsana vinnustofur
Nánari útskýringar á æfingum.
Kafli 3 — Hugleiðsla
Viðeigandi kafli úr handbókinni.

STYTTRI IÐKANIR

BÓNUS EFNI

Stutt dagleg iðkun.

20 mínútna samþætt iðkun
Stutt iðkun sem sameinar helstu þætti námskeiðsins.
Agni Sthāna
Viðbótarefni í námskeiðinu.

LESEFNI · HANDBÓKIN

Flettu í gegnum handbókina.

Með námskeiðinu fylgir 57 blaðsíðna handbók með fræðum, myndum og leiðbeiningum fyrir heimaiðkun.

Skoðaðu þrjár raunverulegar blaðsíður úr fyrsta kaflanum, Hryggsúlunni. Þar er fjallað um hrygginn sem burðarstoð, hreyfikerfi og boðleið taugakerfisins.

SKOÐA 3 BLAÐSÍÐUR ÚR HANDBÓKINNI →

PDF opnast í nýjum flipa. Engin skráning nauðsynleg.

Hryggsúlan Handbókin · bls. 8–10 OPNA PDF →

ALGENGAR SPURNINGAR

Spurningar og svör

Hér finnurðu svör við algengum spurningum um námskeiðið, aðganginn og hvernig þú getur byrjað að iðka heima.

Þarf ég að hafa stundað jóga áður?
Nei. Námskeiðið er byggt upp skref fyrir skref og hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í jóga og þeim sem vilja taka aftur upp reglulega iðkun. Þú getur horft á kennsluna og farið yfir æfingarnar eins oft og þú þarft.
Get ég farið í gegnum námskeiðið á mínum eigin hraða?
Já. Námskeiðið er alfarið stafrænt. Þú ákveður sjálf(ur) hvenær þú horfir á kennsluna og hvenær þú æfir. Þú þarft ekki að mæta á ákveðnum tíma eða fylgja fastri dagskrá. Við mælum með að þú gefir hverjum hluta tíma áður en þú heldur áfram í þann næsta.
Hvað fæ ég þegar ég kaupi námskeiðið?
Þú færð aðgang að þremur kennsluhlutum sem byggja hver á öðrum. Með þeim fylgja leiddar iðkanir, āsana-vinnustofur, fræðilegt efni, myndskreytt handbók og bónusiðkun. Allt efnið er aðgengilegt á netinu og þú getur farið yfir það eins oft og þú vilt.
Hversu lengi hef ég aðgang?
Þú færð ævilangan aðgang að námsefninu. Þú getur því snúið aftur að kennslunni og iðkuninni hvenær sem þér hentar, án þess að þurfa að kaupa námskeiðið aftur.
Hvað ef námskeiðið hentar mér ekki?
Við viljum að þú getir prófað námskeiðið með góðri tilfinningu. Þess vegna bjóðum við upp á 30 daga endurgreiðsluábyrgð. Ef þú kemst að því innan 30 daga frá kaupum að námskeiðið henti þér ekki geturðu haft samband við okkur og fengið kaupverðið endurgreitt.

Byrjaðu í dag.
Gerðu eitthvað í þínum málum.

Fáðu kennsluna, fylgdu iðkuninni og byggðu áfram á þínum hraða.

Allt námskeiðið fyrir aðeins

8.900 kr.

Vertu með í hópi nemenda okkar sem hafa fundið meiri ró, meiri orku og betri líðan með þessum þremur lyklum.

Allt sem þú þarft til að byrja

01

3 upptökur af kennslu

02

3 stigvaxandi iðkanir

03

Vinnustofa

04

20 mínútna bónusiðkun

05

Stafræn handbók

KAUPA NÁMSKEIÐIÐ →
30
DAGA
ENDURGREIÐSLUÁBYRGÐ

30 DAGA ENDURGREIÐSLUÁBYRGÐ

Þú þarft ekki að ákveða allt fyrirfram.

Prófaðu námskeiðið í rólegheitum og sjáðu hvort það hentar þér. Gefðu þér tíma til að kynnast æfingunum og finna hvernig þær nýtast þér.

Við vitum ef þú iðkar muntu fá ávinning, við viljum að þú finnur áþreifanlegan mun á þér, ef ekki þá endurgreiðum við þér, ritaðu okkur innan 30 daga og við endurgreiðum námskeiðsgjaldið að fullu, engar spurningar bara endurgreiðsla.

Einfalt, aðgengilegt án skuldbindinga.

Gummi og Talya – jógakennarar hjá Art of Yoga.

KENNARARNIR ÞÍNIR

Gummi og Talya

Í gegnum áratugina höfum við hjálpað fólki að bæta líðan sína – líkamlega, öðlast meiri orku og finna aukið jafnvægi og hugarró.

Saman búum við að um 50 ára kennslureynslu í jóga, öndun og hugleiðslu. Á þessum tíma höfum við unnið með fólki á öllum aldri, með ólíkar þarfir og mismunandi markmið.

Við höfum séð hvernig einföld og markviss iðkun getur hjálpað fólki að finna meiri styrk og liðleika í líkamanum, endurheimta orku, draga úr spennu og öðlast meiri ró og skýrleika í daglegu lífi.

Í Lyklunum að betra lífi höfum við tekið saman þá þekkingu og reynslu sem við höfum byggt upp í kennslu okkar og mótað að aðgengilegu námskeiði sem þú getur unnið með heima hjá þér.

50+
Ára samanlögð kennslureynsla
Hundruðir nemenda í gegnum árin
Yoga Alliance Professionals – Senior Yoga Teacher

Við erum bæði Senior Yoga Teachers hjá Yoga Alliance Professionals.