Velkomin í Art of Yoga á netinu
Lyklarnir
að betra lífi.
Einn staður fyrir sjálfbæra, heildræna þróun.
Líkamleg þróun, öndun og hugleiðsla fléttast saman í eina heildstæða iðkun. Með persónulegri leiðsögn byggir þú smám saman upp iðkun sem hentar þínum þörfum og styður við betri líðan til lengri tíma.
með Gumma og Talyu

Frír kynningartími
Kynntu þér Lyklana þrjá og hvernig þú getur byrjað að iðka.
Ókeypis · ZoomLyklarnir að betra lífi
Lærðu á þínum eigin hraða og byggðu upp sjálfstæða iðkun heima.
8.900 kr. · EingreiðslaSamverutímar
Fáðu persónulega leiðsögn, svör við spurningum og endurgjöf í lifandi hóptímum með Gumma.
60 mín. · Fyrsti tími innifalinnÞematímar
Dýpkaðu skilninginn með fræðslu og heildrænni iðkun. Opið öllum.
60–75 mín. · 4.000 kr.Frá vanlíðan í átt að meiri vellíðan
Frír kynningartími
Hvernig getum við dregið úr óþarfa þjáningu í daglegu lífi?
Á fríum kynningartíma skoðum við hvernig hreyfing, öndun og hugleiðsla geta stutt við meiri orku, betri svefn og endurheimt, minni spennu og eymsli og aukna ró í daglegu lífi.
Við vinnum út frá þínum upphafspunkti. Skilningur, viðeigandi iðkun og reglusemi skapa grunn að framförum sem taka tíma.
Líkaminn
Hreyfing, líkamleg þróun og hryggsúlan.
Öndunin
Að skilja öndunina og læra að vinna með hana.
Hugurinn
Athygli, hugleiðsla og meiri stöðugleiki í huganum.
Hreyfing, öndun og athygli vinna saman. Við lærum að tengja þessa þrjá þætti í eina heildstæða iðkun.
Fræðsla
Aðgengileg kennsla um lyklana þrjá og tengsl þeirra við daglega líðan.
Einföld mæling
Hagnýtt tækifæri til að átta þig á eigin upphafspunkti.
Létt iðkun
Einföld, leidd iðkun svo þú getir upplifað nálgunina.
Engin fyrri jógareynsla er nauðsynleg.
17:00–18:00 · Zoom · Íslenskur tími
Ókeypis
Skrá migFræðsla og leiðbeiningar til að styðja þína eigin iðkun.
Skoða kennsluefni og sýnishorn ↗Stafrænt grunnnámskeið · Tilbúið núna
Lyklarnir
að betra lífi
Næsta skref er að læra að iðka sjálfstætt heima. Kynnstu lyklunum þremur, fylgdu leiddri iðkun og byggðu smám saman upp rútínu sem hentar þér.
- Skildu lyklana þrjá með myndbandskennslu
- Lærðu að iðka með leiddum æfingum
- Nýttu handbók og vinnustofur sjálfstætt
- Þróaðu heimaiðkunina á þínum hraða
8.900 kr. Eingreiðsla
Skoða og kaupa námskeiðið ↗Sjálfstætt nám með upptökum og námsefni. Þú þarft hvorki að sækja tíma né kaupa viðbótarþjónustu til að vinna með námskeiðið.
Fyrsti samverutíminn fylgir; áframhaldandi leiðsögn er valfrjáls.
Lyklarnir — Samverutímar
Stuðningur, aðhald og persónuleg leiðsögn
Í samverutímunum vinnur þú beint með Gumma að þinni iðkun, færð endurgjöf og finnur leiðir sem henta þér.
- Fáðu persónulega leiðsögn í þinni iðkun.
- Dýpkaðu skilning þinn á sjálfum þér og því hvernig iðkunin hefur áhrif á þig.
- Fáðu skýra leiðsögn að þínum markmiðum og hjálp við að velja næstu skref.
- Lagaðu æfingarnar að þér — þínum þörfum, getu og aðstæðum.
- Fínpússaðu framkvæmdina og öðlast meira öryggi í iðkuninni.
- Ræddu það sem reynist erfitt og finndu leiðir til að halda áfram.
Persónuleg leiðsögn með Gumma
Yfir 25 ára reynsla af einstaklingskennslu og meðferðarmiðaðri nálgun í jóga.
Með Gumma færðu tækifæri til að laga æfingarnar að þínum þörfum og dýpka skilning þinn á því hvernig þú getur iðkað á árangursríkan hátt.
Fyrsti samverutími er innifalinn í kaupum á Lyklunum að betra lífi. Eftir það kostar hver tími 3.000 kr.
Valfrjáls þátttaka · Engin áskrift
Upptaka úr tímanum verður aðgengileg í eina viku eftir tímann.
Aðeins fyrir kaupendur Lyklanna. Innifalinn tími er í boði ef þú hefur ekki þegar nýtt fyrsta samverutímann.
Þematímar — Opið öllum
Dýpkaðu skilninginn með fræðslu og heildrænni iðkun
Í hverjum tíma könnum við ákveðið viðfangsefni, ræðum tengsl þess við daglegt líf og förum í gegnum heildræna iðkun þar sem hreyfing, öndun og hugleiðsla mynda eina heild.
Þematímar
Þú þarft ekki að eiga Lyklana til að taka þátt. Verðið er það sama fyrir alla, líka kaupendur Lyklanna. Í hverjum tíma er hægt að spyrja spurninga um viðfangsefnið.
Upptaka úr tímanum verður aðgengileg í eina viku eftir tímann.
Streituformúlan
— og leiðir til streitulosunar
Skoðum hvernig streita hefur áhrif á okkur og leiðir til að vinna með hana í iðkun.
Níu hindranir
að innri þroska
Hvað stendur í vegi fyrir breytingum og hvernig getur iðkun hjálpað okkur að vinna með það?
